námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir ræðuna. Í ljósi þeirrar þekkingar sem hún hefur á málaflokknum og innleiðingu af fríum námsgögnum þá langaði mig að spyrja hv. þingmann, vegna þess sem kemur fram í þessu frumvarpi að innleiðingin eigi að vera áfangaskipt til ársins 2029. Nú segir ríkisstjórnin að þetta sé forgangsmál og innleiðingarfasinn er þannig að þú byrjar á yngstu börnunum, sem ég ætla ekkert endilega að hafa skoðun á í þessu andsvari, en ég velti fyrir mér: Telur hv. þingmaður að þetta snúist um flækjustig, raunverulegt flækjustig, að innleiðingin taki svona langan tíma eða snýst þetta um kostnað? Og ef þetta snýst um kostnað, telur hv. þingmaður að þetta sé þá raunverulega eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar miðað við öll þau útgjöld sem fara til málaflokksins?