156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:51]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir andsvarið. Já, ég held að þetta sé flækjustig. En það verða kannski einhverjir aðrir að svara því hvort þetta sé spurning um kostnað í einhverjum áföngum. En það sem mig langaði til að koma aðeins á framfæri í þessari umræðu, talandi um reynslu, því að ég vitnaði hérna til þess í fyrri ræðum að börnin færu verr með það sem væri gjaldfrjálst, það væri bara reynslan, og það væri ákveðin sóun í kerfinu, innkaup væru ekki alltaf nógu hagstæð og þar fram eftir götunum, það væru búin að safnast upp einhver ákveðin námsgögn sem væru svo kannski pöntuð aftur á næsta hausti — þetta er flækjustig. En ekki síður þá er bara mjög mikill fjöldi barna og foreldra sem vill bara fá að velja þau námsgögn, eins og blýantana og hvað þetta heitir allt saman, foreldrar vilja velja fyrir börnin sín. Það gengur einhvern veginn ekki eitt fyrir alla því að eðli málsins samkvæmt þegar verið er að kaupa inn fyrir stóra hópa þá eru keyptir ákveðnir blýantar, ákveðnir pennar og strokleður, en börnin vilja svo, þegar á reynir, hafa þetta frelsi.