156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:53]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Í seinna andsvari langaði mig til að spyrja hv. þingmann aðeins út í það sem henni var frekar tíðrætt um, að við ættum að treysta kennurunum. Nú fyrir nokkrum árum treystum við kennurunum ekki betur en svo að þegar inn í skólana var komið og börnum voru gefnir tannburstar eða hjálmar eða eitthvað annað þá sögðum við: stopp, þetta má ekki fara inn í skólanna. Á hverjum bitnaði það helst? Það bitnaði á efnaminna fólki, efnaminni börnum sem ekki fengu hjálma öðruvísi og þar var kannski minni umhirða, tannumhirða og slíkt. Þar hefði augljóslega átt að treysta kennurunum til að meta hvaða fyrirtæki og hvaða námsgögn, ef svo má segja, hefðu átt að vera leyfð. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að það ætti að víkka það út þegar talað er um námsgögn og að treysta kennurum, að jafnvel leyfa einkaaðilum að koma inn í skólana, kynna starfsemi, kynna iðnnám, kynna annað til að fjölbreytileiki barna verði meiri.