156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:54]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir seinna andsvar. Já, ég get vel tekið undir með þingmanninum. Það er bara svo komið í dag að það þarf orðið sérstök leyfi fyrir því að íþróttafélög komi inn og kynni starfsemi sína í sumum tilvikum þannig að við erum orðin allt of stíf í ýmsu tilliti. Ríkisvæðingin er orðin allt of mikil að mínu mati í svo mörgu tilliti inni í skólunum að það er eitthvað sem við þurfum að hugsa um. Ef ég skildi hv. þingmann rétt var hún að vísa til þess að það voru félög sem vildu gefa hjálma merkta fyrirtækjum og slíkt, ég held að þingmaðurinn sé kannski að vitna til þess, en þá hafi það ekki mátt því að það passaði ekki inn í viðkomandi skóla og svona. Við erum kannski komnar aðeins út fyrir efni þessa frumvarps sem við erum að ræða hérna í dag, en að mínu mati erum við oft dálítið einstrengingsleg í þeim efnum og mættum vera aðeins léttari á því hvað það varðar.