156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:55]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir sína ræðu. Ræðan var ágætisinnsýn inn í það hvernig hv. þingmaður upplifir skólakerfið á Íslandi undir stjórn Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna á síðustu árum, einhvers konar sovéskur veruleiki þar sem ríkið stýrir öllu og ákveður hvaða blýanta má nota og hvaða bækur má lesa. Ég viðurkenni fyrir mitt leyti að ég tengi ekki við þennan veruleika. Mig langar svo að skipta þessu aðeins upp af því að við höfum stuttan tíma. Hef ég tvær mínútur í fyrri?

(Forseti (ÞSv): Nei, þetta er mínúta.)

Nei, klukkan er nefnilega vitlaus, ég hélt kannski að ég hefði meiri tíma. — Já, nú hvarf tíminn minn.

En varðandi gjaldfrjálsu námsgögnin þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Telur hv. þingmaður það virkilega svo að ef nemendum er veittur aðgangur að gjaldfrjálsum námsgögnum þá sé þeim bannað að koma eigin blýanta og strokleður að heiman eða telur hv. þingmaður að aðgangur að gjaldfrjálsum námsgögnum tryggi það að enginn sé án námsgagna? Fyrsta spurning. Ræðum svo betur saman í síðara andsvari.