156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:57]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir andsvarið. Já, alla vega varðandi aðra spurninguna sem ég náði þá er þetta einmitt spurningin. Nei, það er ekkert sem bannar nemendum að koma með sín eigin gögn. En þá erum við að tala um bara mikla sóun í kerfinu og það hefur einmitt verið ein af ástæðum fyrir því að þessi þrýstingur kom, eins og ég sagði hérna áðan, hreinlega pólitískur þrýstingur. Það var ekki verið að þrýsta á þetta frá foreldrum eða kennurum, alla vega í mjög litlum mæli ef það hefur verið. Ein af ástæðunum var að það væri svo mikill samanburður á milli barna, einhverjir væru að koma með flottari blýanta eða pennaveski eða strokleður eða hvað það er, að það væri samanburðurinn líka. Þannig að ef við ætlum að fara að kaupa fyrir börnin og þau koma svo með sín eigin gögn þá erum við einmitt komin á þennan stað sem ég var að tala um, að það er ákveðin sóun sem getur falist í þessu á svo margvíslegan hátt. Kennarar, eins og þeir sem ég hef reynslu af, hafa einmitt verið að benda á þetta og þess vegna hefur verið stigið aðeins til baka.