námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir svarið. Ég tengi ekki við þennan veruleika aftur þar sem oftast er það þannig að það er einfaldlega boðið upp á þennan aðbúnað og ekki keypt meira en þörf er á. Ég vildi líka benda á að þetta er alls ekki pólitískur þrýstingur sem ýtir málinu áfram heldur einmitt ákall frá velferðarsamtökum barna. Verkalýðsfélögin fagna þessu, samband framhaldsskólanema fagnar þessu. Það var líka áhugavert þegar virðulegur þingmaður nefndi Norðurlöndin þar sem t.d. á Norðurlöndunum, m.a. í Finnlandi sem hv. þingmaður nefndi, eru námsgögn gjaldfrjáls í framhaldsskólunum með góðum árangri, eins og hv. þingmaður kom inn á.
Aðeins varðandi seinni markmið frumvarpsins. Mér þykir mjög áhugavert hvernig hv. þingmaður gagnrýnir þessa ríkisreknu námsgagnaútgáfu, því að þegar ég les það frumvarp sem hér liggur fyrir er einmitt verið að tala um það að móta breiða stefnu varðandi námsgagnagerð, vinna svo með kennurum, vinna með atvinnulífinu, bjóða út, vera eiginlega með samkeppnissjóði um að búa til námsgögn sem svara þörfum skólasamfélagsins en að það séu einmitt einkaaðilar sem eru að vinna þessi námsgögn. Þannig að ég spyr hv. þingmann: Hvað er það í frumvarpinu sem hún er á móti varðandi þetta? Því að ég sé algerlega andstöðu við þennan sovéska veruleika sem hún hefur lifað í síðastliðin ár birtast í frumvarpinu.