156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:59]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir annað andsvar. Já, það er verið að gera ákveðnar breytingar þarna á útgáfu, hvernig staðið er að útgáfu, en alltaf skal þetta fara í gegnum, hvað þeir heita, þessa sjóði og nefndir sem þetta á að fara í gegnum. Það eru ekki kennararnir sjálfir sem mega velja efnið og það eru ekki einkaútgáfur sem munu gefa út efni og selja þar sem þessi gögn eru seld. Það get ég ekki lesið út úr frumvarpinu og þætti þá vænt um að fá að sjá nákvæmlega hvar sú setning liggur. Það er verið að viðhalda þessu kerfi með ákveðnum áherslubreytingum en ekki verið að aflétta ríkiseinokun á því hverjir velja efnið og hvernig það er fært til nemenda.