156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[21:18]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Fyrst vil ég segja að ég myndi þá bara beina þeim tilmælum til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að óska kannski eftir því að fá að sjá reglugerð eða drög að reglugerð sem á að setja um námsgagnasjóð. Ég fagna mjög því svari hæstv. ráðherra að hann hyggist ekki beita sér varðandi útgáfu námsefnis. Ég held að það sé ekki stjórnmálamanna að gera það, eins mikið og ég fagna samfélagslegri umræðu um námsgögn og skólamál og samfélagið allt á að taka þátt í slíkri umræðu. En ég er sammála því að pólitíkin á ekki að hafa með það að gera. En þá ætla ég líka að beina því til hæstv. ráðherra, vegna þess að hann skipar einn stjórnarmann án tilnefningar, forseti, að það væri ágætt ef hæstv. ráðherra myndi ekki skipa einhvern flokkshest sem myndi mögulega ætla að einbeita sér að einhverjum pólitískum áróðri þar af því að við höfum séð hvernig Flokkur fólksins hefur hingað til skipað í stjórnir. Þannig að þetta er bara ágætisábending til hæstv. ráðherra.

Hæstv. ráðherra segir að hér eigi ekki að skera niður en engu að síður segir fjármálaáætlunin það skýrt að í hans málaflokkum eigi að hagræða um 4 milljarða; 2,5 milljarða á framhaldsskólastiginu, í málaflokki 20, og 1,5 milljarða á öðrum skólastigum, í málaflokki 22. Það er þá bara áhugavert að heyra að forsætisráðherra hyggist sjá til þess að hæstv. menntamálaráðherra fái aukið fjármagn því að hér hefur verið farið skýrt yfir það að hér séum við að tala um ramma og að hæstv. ráðherrar skuli bara vinna innan síns ramma. Ég styð hæstv. ráðherra heils hugar í því að fara vel með fé og eins og bent hefur verið á þá vitum við að grunnskólastigið kostar mikið á Íslandi. Það er nú reyndar aðallega á kostnað sveitarfélaganna. En þetta eru bara þeir liðir sem eru á málefnasviði hæstv. ráðherra og eru að fara úr ríkiskassanum. Á sama tíma hafa sveitarfélögin einmitt kallað eftir aukinni aðstoð og auknum fjármunum vegna þess að grunnskólinn er dýr, þannig að það verður bara spennandi að sjá framvindu þessa máls.