156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[21:20]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég verð bara að segja alveg eins og er að í þeirri fjármálaáætlun sem er núna í gangi þá var fyrri ríkisstjórn búin að eyrnamerkja ákveðna peninga í ákveðin málefni sem áttu að detta út núna um áramót. Þar undir er fullt af virkilega góðum málum eins og að taka á vandamálum barna með fjölþættan vanda og ýmislegt annað sem er búið að gera alveg frábærlega þar. Við erum bara að skoða hvað er virkilega gott og hvernig við getum haldið þessu áfram, ekki vera með einhvern plástur á frá ári til árs heldur taka þetta virkilega þannig að þetta muni skila þeim árangri sem við viljum að þetta nái. Sérstaklega eru þarna undir t.d. börn af erlendum uppruna, málefni sem við þurfum virkilega að taka á. Þarna eru frábær mál í gangi og því miður hef ég ekki meiri tíma, en ég hefði getað svarað þessu öllu ef ég hefði fengið andsvör hér í umræðu um fjármálaáætlunina, sem kom auðvitað ekkert upp því að eins og hv. þingmaður veit þá löbbuðu allir stjórnarandstæðingar út.