156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[21:23]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og mig langar líka að þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera inni í salnum á meðan umræðan fer fram. Ég náði nú ekki að koma upp í andsvör við hann. En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann eftir hennar ræðu — ég ætla að grípa inn í greinargerðina, örstutt, með leyfi forseta. Þar stendur að þessi ríkisstjórn hyggist hefja sókn í menntamálum og bæta umhverfi nemenda og kennara. Gott og vel. Það sem mig langar að spyrja er: Umhverfi nemenda, er það ekki umhverfi foreldra líka? Ég spyr að þessu vegna þess að það sem var Námsgagnastofnun hér áður, þá var foreldrum ekki heimilt — og ég hef bara persónulega reynslu af því að ég var hjálpa barni að læra og ég mátti ekki kaupa gögn hjá Námsgagnastofnun af því að ég var ekki kennari þannig að ég gat ekki hjálpað barninu að læra ef ég fór eftir þessum reglum. En það var svo hjálpsamur starfsmaður sem benti mér á: Ertu nokkuð að kaupa fyrir nemendur í útlöndum, fyrir Íslendinga í útlöndum? Þá máttu kaupa. Þannig að allt í einu var ég að því, að kaupa fyrir barn í útlöndum svo að þetta bjargaðist í það skiptið. Mig langaði að spyrja hv. þingmann, sem er nokkuð kunn þessu frumvarpi: Telur hún að það þurfi að taka það sérstaklega fram að heimilt sé að kaupa gögn, alla vega ákveðin gögn, ég er ekki endilega að tala um einhverjar próflausnir eða -niðurstöður, heldur bara almennt námsefni og bækur sem verða gefnar út? Þarf að taka það fram eða heldurðu að þetta frumvarp sé nægilega skýrt, að það eigi að þjóna nemendum þannig að þetta verði ekki vandamál héðan í frá?