námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og ætla að segja að ég er ekki kannski sérstaklega kunnug þessu frumvarpi en ég er mjög kunnug forsögu málsins, eins og ég fór hérna yfir varðandi Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og þá vinnu sem átti sér stað á síðasta kjörtímabili. Ég hef ekki lent í sambærilegu og hv. þingmaður var að rekja hér, að mega ekki kaupa gögn, en það er fáránlegt. Það er bara eitt orð yfir það: Það er fáránlegt. Mín sýn og okkar í Sjálfstæðisflokknum þegar við vorum að koma að vinnu er laut m.a. að þessum starfshópi sem skrifaði ákveðna greinargerð sem þetta frumvarp var svo að einhverju leyti unnið upp úr — ég átta mig á því að í svona starfshópum verður oft einhver málamiðlunartillaga. En mín sýn hefur verið sú og okkar flestra í Sjálfstæðisflokknum að við eigum einmitt að hleypa markaðnum að þessu þannig að ég sé ekki fyrir mér að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu eigi að vera einhver söluaðili bóka eða námsgagna. Ég sé fyrst og fremst fyrir mér að þetta eigi að vera einhvers konar gæðavottunarferli og að hver og einn skóli, og ef foreldri er í því tilfelli, geti svo séð hvað er vottað, hvað uppfyllir þau skilyrði að samræmast námskrá og þeirri kröfu sem gerð er og geti þá nálgast viðkomandi námsgögn á internetinu, hjá einstaklingum eða í bókabúðum eða hvað það er. Þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt að breyta því að þetta sé ekki einhver ríkisstofnun sem sé að framleiða og gefa út námsefni. Ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að fara vel í gegnum það í umræðunni að það séu skilyrðin og að það sé krafan sem gerð er á Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. En eins og ég sagði hérna áðan þá get ég alveg áttað mig á því að það kann að vera að það þurfi að bjóða einhver verkefni út og þá getur Miðstöð menntunar og skólaþjónustu haft einhverja umsýslu í kringum það en alls ekki að búa til einhverja ríkisbókaútgáfu.