námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir svarið. Ég fékk ábendingu frá hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur um að mjög líklega sé þetta ekki lengur svona. En hérna í seinna andsvari þá langar mig til að spyrja hv. þingmann út í það sem hún ræddi, ég held að það hafi ekki verið í ræðu hennar, ég held að það hafi verið í andsvörum áðan, dæmið sem hún tók varðandi son sinn sem væri núna orðinn 18 ára og hvernig skiptingin yrði innan framhaldsskólans um ókeypis námsgögn og ekki. Í því ljósi langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að það sé óraunhæft að miða við 18 ára aldur og hvort við ættum mögulega að skoða það að miða frekar við framhaldsskólastigið þrátt fyrir að mögulega séu einhverjir eldri sem njóti þess.