námsgögn.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið. Já, einmitt, ég nefndi það hér að ég held að þetta geti verið mjög miklum vandkvæðum bundið. Ég hef ekki fengið svör frá hæstv. ráðherra eða fyrrverandi hæstv. ráðherra þegar ég var að ræða þetta né veit ég til þess að ráðuneytið sé búið að finna einhvern veginn nákvæmlega hvernig á að útfæra þetta. Þannig að ég held að hv. allsherjar- og menntamálanefnd þurfi einmitt að fara yfir þessa umræðu. Ég held að annars vegar þurfi að velta fyrir sér, og ég sé það reyndar í greinargerðinni, mig minnir að ég hafi lesið einhvers staðar að þetta sé athugasemd sem hafi m.a. komið fram en þau hafi ekki talið ástæðu til að bregðast við því. Hérna er það, virðulegur forseti:
„Ábendingar um jafnræði nemenda, annars vegar vegna 18 og 19 ára framhaldsskólanema og hins vegar nemenda í bóknámi og iðn- og tæknigreinum, leiddu ekki til breytinga á frumvarpinu.“
Auðvitað er fólk að velta þessu fyrir sér. Ég held að þetta geti verið flókið. Ég skil að það þarf að gera þetta í einhverjum áföngum en ég óttast mjög hvað verður um jafnræðið þegar verið er að horfa á nemendur hlið við hlið, einn 16 ára og einn 18 ára og einn kannski 19 ára að læra sama hlutinn og einn fær afhent gögn og verkfæri frá skólunum en hinir ekki. Ég held að það geti orðið býsna flókið og velti fyrir mér hvort það geti staðist einhverja jafnræðisreglu.