námsgögn.
Haraldsdóttir. Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hvað lýtur að þessum kostnaðarlið er ég ekki hissa á því að Samband íslenskra sveitarfélaga kunni að hafa einhverjar áhyggjur. Það er mikilvægt og við lendum ítrekað í því í samskiptum milli ríkis og sveitarfélaga að það komi upp einhver ágreiningur um hver á að greiða hvað og annað. Ég skil það mjög vel því að ef ég þekki kerfið rétt eins og það er í dag þá eru einhver gögn sem verða til hjá gömlu Menntamálastofnun eða öðru og skólarnir hafa einhvers konar inneignarnótu til að versla fyrir eitthvað ákveðið fjármagn. Ef skólarnir ætla svo að fara að nota eitthvað annað, eins og t.d. einhvers konar tæknibúnað eða nýsköpunarlausnir, þá þarf viðkomandi skóli að eiga það í sínu fjármagni sem hann fær frá viðkomandi sveitarfélagi. Það hefur, held ég, verið aðalfyrirstaða þess að nýsköpunarlausnir hafi komist raunverulega inn í skólana því að skólarnir hafa bara almennt ekki haft fjármagn eða ekki viljað forgangsraða fjármunum í það. Þannig að ég skil mjög vel að sveitarfélögin séu svona óviss: Bíddu, hvað mun þetta nákvæmlega þýða? Og ég hugsa núna á meðan ég stend hér hvort það sé m.a. ástæðan fyrir því að það sé hægt skera niður um 1,5 milljarða í þessum lið á sama tíma og það á að gefa í, ég veit það ekki. Ég veit að Samband íslenska sveitarfélaga yrði ekki ánægt með það ef það væri lausnin, ef við ætluðum að færa þennan kostnað yfir á sveitarfélögin. Ég sá það ekki í mati á áhrifum. Það er nú kannski ein spurning hérna sem nefndin þarf að huga sérstaklega að, þ.e. hvort við sjáum fyrir okkur að þetta frumvarp hafi einhver áhrif á sveitarfélögin. Það er skylda að leggja mat á það en ég sé það ekki í fljótu bragði.
Hin spurningin sem hv. þingmaður spurði mig út í varðandi tímarammann — ég veit það ekki. Ég sagði áðan að ég héldi að ég myndi forgangsraða með því að leggja fyrst áherslu á það að bæta verulega í námsgagnagerð fyrir grunnskólana. (Forseti hringir.) Það væri atriði nr. 1 í mínum huga. En svo er þetta auðvitað svolítið langt inn í framtíðina hjá næstu ríkisstjórn þar sem þetta á að taka gildi að fullu.