námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir svarið. Já, það er einmitt þessi langi aðlögunartími og ég rétti kannski hv. þingmanni það á silfurfati og þingmaðurinn greip það. En hér er auðvitað verið að færa lykiláfanga í frumvarpinu inn á tímabil næstu ríkisstjórnar, ég þurfti greinilega ekki að stafa það neitt.
Að öðru og í samhengi við kostnað og nýsköpun, sem hv. þingmaður vék máli sínu aðeins að og hefur verið reifað hér fyrr í dag og kvöld, varðandi aðgang að sérstökum námsgögnum fyrir verknám, þ.e. iðn-, list- og tæknigreinar, þar sem oft þarf mjög sérhæfð og dýr námsgögn. Frumvarpið fjallar kannski ekki nægilega skýrt um það, eins og margir hafa vikið máli sínu að. Ég nota kannski síðustu sekúndurnar ekki bara í spurningu til hv. þingmanns, hvernig hún lítur á það, heldur beini ég því líka bara til ráðherra og þá væntanlega hv. nefndar, að skýra þetta aðeins betur.