námsgögn.
Hæstv. forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni andsvarið. Ég bara tek undir með hv. þingmanni, þetta er einmitt eitthvað sem er algjörlega óútfært, hvernig við eigum að gera þetta, hvernig á að vera með gjaldfrjáls námsgögn fyrir alla nema, líka í iðn- og tæknigreinunum. Það verður nauðsynlegt. Ég hygg að ástæðan fyrir því að það er ekki útfært sé hreinlega sú að ráðuneytið er ekki farið að sjá fyrir sér hvernig það hyggst gera þetta. En ég held að það sé alveg ljóst að hv. allsherjar- og menntamálanefnd þarf að kalla eftir slíkum gögnum frá ráðuneytinu og mögulega aðstoða ráðuneytið við að forma það hvernig gera á slíkt. Þarna er alveg flækjustig.
Virðulegur forseti. Nú á ég tvö börn sem stunda iðnnám. Annað er í gullsmíði og við keyptum fullt af dýrum töngum og ég veit ekki hvað, einhver áhöld og annað. Hitt er múrari og það sama átti sér stað þar en það var miklu ódýrara. En í báðum þessum tilfellum eiga börnin auðvitað þessi áhöld og munu nýta þau áfram. Þarna kemur það upp, einhverjir eru jafnvel að vinna fyrir sér með sínu múraradóti eða skrúfjárnum eða eitthvað í helgarvinnu og annað sem þau eru að læra á daginn. Þannig að þetta verður flókið en þetta þarf að útfæra ef þetta er framtíðarsýnin.