156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[21:37]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir áhugaverða umræðu hér í dag og hæstv. menntamálaráðherra fyrir að heiðra okkur með nærveru sinni í þessu fyrsta máli hans og óska honum til hamingju með flutning þess. Þetta er athyglisvert mál og vekur upp margar áleitnar spurningar, bæði praktískar og auðvitað hugmyndafræðilegar, samfélagslegar. Ég minnist þess þegar ég var í pallborði í kosningabaráttu með hæstv. þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, og sú spurning kom upp hvort maður styddi það sem mig minnir að hafi verið lýst með orðunum ókeypis námsgögn fyrir alla nemendur. Maður var tiltölulega nýstiginn inn í pólitík þannig að maður hugsaði: Ja, geri ég það? Hæstv. þáverandi ráðherra aðstoðaði mig og sagði: Flokkurinn þinn gerir það ekki. Þetta vakti upp hlátrasköll hjá áhorfendahópnum sem var ungt fólk og kannski almennt ekki endilega Miðflokksfólk nema þeir sem þögðu. Þá hugsaði maður: Maður hljómar voða illa að vera á móti ókeypis námsgögnum. Þetta er svona auðveld keila til að slá, að vera fylgjandi ókeypis námsgögnum. En það er ekkert ókeypis í þessu lífi, eins og maður segir, þ.e. einhver borgar þetta á endanum og spurning hvort það er ríkisvaldið á hverjum tíma eða þá fólkið.

Hér erum við að ræða um einkum niðurgreiðslur á námsgögnum fyrir framhaldsskólanema. Ef maður rifjar það upp, af því að það er nú ekki sérlega langt síðan maður var sjálfur í framhaldsskóla, hvernig þessu er háttað þá fer maður í upphafi annar og kaupir sér námsgögnin. Mig minnir ekki að þetta hafi verið neinar gífurlegar upphæðir á hvern nemanda. Fólk gat leitað á skiptibókamarkaði og bjargað sér ansi langa leið með því að kaupa bækurnar þar. Einstaka sinnum lenti maður í að „þurfa“ að kaupa nýja bók en þá eignaðist maður nýja bók og þá gat maður selt hana á næsta ári á skiptibókamarkaði. Maður ábyrgðist þetta sem nemandi, að axla ábyrgð á námsgögnunum sínum. Það er þetta var ólíkt því sem var í grunnskólanum, þá fékk maður þetta allt upp í hendurnar, en þegar í framhaldsskóla er komið þá er þetta svona.

Ég ræddi það í fyrri ræðu minni og spurði einmitt hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur, eða reyndi að kalla fram hennar mat á þeim þætti hvort eitthvert ákall hafi verið eftir þessum breytingum, að ríkisvaldið tæki utan um þennan þátt framhaldsskólalífsins sem eru þessi bókaviðskipti sem hver og einn nemandi þarf að stunda, hvort það hafi verið eitthvert ákall eftir þessu. Ég hefði áhuga á að heyra það frá hæstv. menntamálaráðherra, ef hann hefur tíma eða hefur svör við því og kæmist upp í andsvör til að skoða þennan þátt, hvort þetta sé gert á grundvelli einhvers ákalls eða hvort þetta sé bara þessi hugmyndafræðilega ákvörðun af hálfu ríkisvaldsins að ná að taka utan um þetta.

Við erum að tala um tæpar 400 millj. kr., 300–400 millj. kr., og þeim verður þá varið í að kaupa, eins og maður skilur frumvarpið, framhaldsskólanámsefni fyrir nemendur. Ég þarf að rifja aftur upp þessi samskipti við unga fólkið þegar allir glöddust yfir því að hinn illi Miðflokksmaður vildi ekki ókeypis námsgögn fyrir alla. Þá veltir maður fyrir sér, til að prófa að mótmæla þeirri hugsun að eina leiðin til að vera góður sé að vilja ókeypis hluti fyrir alla, bara fyrst við erum að ræða þetta atriði: Hvert er raunverulegt réttlæti í því að ákveða að öll námsgögn verði keypt þegar við getum kannski gengið út frá því eins og verið hefur hingað til, enda kannast ég ekki við umræðu um annað, að flestir nemendanna ráði við að kaupa þetta sjálfir? Að þannig hafi það verið, að þannig sé það enn þá jafnvel þótt það eigi að breyta þessu. En ef við göngum út frá því, sem ég held að sé bara rétt, að flestir nemenda ráði við að kaupa þessar bækur — svo er auðvitað hópur nemenda sem á miklu erfiðara með þetta — þá spyr maður sig: Þessar 350–400 milljónir, er þeim þá vel varið? Ef maður spyr sig raunverulega að því í hvað við erum að setja peningana, er þeim þá endilega best varið í að kaupa bækurnar fyrir börnin sem geta keypt þær sjálf? Í staðinn fáum við ekki þessa fjármuni, 350–400 milljónir, sem eru verulegir fjármunir í skólakerfinu, fáum þá ekki í staðinn í önnur verkefni til að búa einfaldlega til gott kerfi sem myndi ná utan um þá nemendur sem þyrftu á þessu að halda.

Það er ekki einhlítt að þetta sé jöfnuður í sinni tærustu mynd eða réttlæti, að láta þá sem geta vel borgað ekki borga af því að maður ætlar að ákveða að eitt gangi yfir alla. Þannig að ég geld varhuga við því að það sé svarið við því úrlausnarefni að tryggja jöfn tækifæri í menntakerfinu. Ég trúi ekki öðru en að það séu til leiðir til að láta nemendur sem þurfa á aðstoðinni að halda fá hana með reisn án þess að nokkur taki eftir því, eða hvernig það væri gert. Það hljóta að vera leiðir til að mæta þeim hópi nemenda, sem ég held að sé í miklum minni hluta, sem getur ekki skapað sér þetta, í stað þess að gefa öllum hinum bækurnar sem eru kannski búnir að vinna yfir sumarið, eignast — ég veit ekki, ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki nákvæmlega upphæðina, ég myndi skjóta á 40.000–50.000 kr. Það er samt alveg peningur, maður áttar sig því, kannski 20.000 kr., 30.000 kr. Maður þyrfti kannski, og í þessari umræðu hefði ég áhuga á því að kanna almennilega hvað þetta er að kosta fólk. En maður vildi koma þeim punkti á framfæri að það er ekki einhlítt að þetta sé eina leiðin til að tryggja jöfn tækifæri og það er ekki einhlítt að fjármununum sé best varið með þessum hætti.

Þar fyrir utan held ég að það sé gott fyrir nemendur að eignast sínar eigin bækur. Á þessum síðustu og verstu tímum er það líklega fágæt reynsla á meðal ungs fólks að eignast sín eigin bók út frá því sem maður heyrir um bóklestur. Ég minnist þess að maður eignaðist sínar eigin bækur. Maður þurfti að ábyrgjast þetta, djöflast í að finna þetta, fletta þessu upp, finna réttu útgáfuna og annað eins. Þetta er ákveðin upplifun að þú átt þessar bækur þrátt fyrir að þetta séu námsbækur og virðingin fyrir þeim sé misjöfn. Hún er þó alla vega einhver ef þú átt þetta sjálfur. Maður heyrir hv. þingmenn lýsa því hérna að virðingin sé mjög takmörkuð þegar fólk fær bara eitthvert hefti eða einhverja bók hér og þar og skilur það eftir og veit að það fær aðra bók ef það týnir þessari o.s.frv. Það innrætir fólki ákveðna virðingu fyrir bókum að eiga þær sjálft.

Og af því að við eigum að tala um hver borgar, ég meina, þið hafið verið í sundi og þið sjáið hvernig fólk fer með sápuna í sturtuklefanum. Það gerir þetta enginn heima hjá sér. Þú veist að það er einhver annar sem borgar. Það er ágæt líking sem fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann skrifaði ágætan pistil um í Sunnudagsmoggann sem hefur aldrei runnið mér úr minni, að þetta lýsi því hvernig við förum með það sem við vitum að einhver annar borgar fyrir. Fólk er að taka sjö, átta skvettur af sápu sem maður myndi aldrei nokkurn tímann voga sér að gera heima hjá sér, þar eru það tvær, þrjár í besta falli. Þannig að þótt líkingin sé brosleg þá er þetta lýsandi fyrir afstöðu okkar til þess hver borgar á endanum og ef það er alltaf ríkisvaldið sem borgar er virðingin óhjákvæmilega minni.

Það er gert ráð fyrir þessum 40.000 kr. árlega þannig að þetta var rétt ályktað hjá manni. Þetta eru sirka 40.000 kr. á nemanda. Nemendurnir eru eitthvað átta, níu, tíu þúsund þannig að þetta eru þessar 350–380 milljónir. Í umsögn um þetta mál þegar það kom fram af hálfu annarra ráðherra þá var fjallað um það t.d. af hálfu Samtaka atvinnulífsins að ef það næst fram kostnaðarhagræði sem þarna er boðað, og það þýðir að fólk væri að nota sömu bækur ár eftir ár inni í skólunum, þá felist í því ákveðið kostnaðarhagræði fyrir skólahliðina eða sem sagt kerfishliðina í útgjaldahliðinni af hálfu ríkisvaldsins. Það er hagræði þar. En það þýðir þá að það eru minni fjármunir sem fara yfir á hina hliðina, þ.e. sem eftirspurn, og ef þú nærð fram kostnaðarhagræði innan þess ramma, sem ég leyfi mér reyndar að stórefast um, að þetta sé ekki upphæð sem er sögð núna vera 350–400 milljónir sem muni bara sem vaxa ár frá ári, maður efast um að það náist fram þetta hagræði, en þá erum við að kaupa bækur og svo liggja þær þarna án þess að þær séu endurnýjaðar og það myndi skapa vanda fyrir útgefendur vegna þess að þeir hafa auðvitað hagsmuni af því að það sé verið að kaupa bækur.

Við höfum í allsherjar- og menntamálanefnd verið að fjalla um menntamál í mjög víðum skilningi á þessum síðustu tímum og margt afar forvitnilegt sem kemur þar fram. Maður er mjög spenntur að fjalla betur t.d. um frumvarp hæstv. menntamálaráðherra um framhaldsskóla sem kemur þarna fram. Í greinargerðum við lestur frumvarpanna fær maður oft innsýn í kennslufræðilega hugmyndafræði sem liggur að baki ákvörðunum stjórnvalda í þessum málum og maður finnur hvernig hjartað slær hugmyndafræðilega, ef svo má segja, innan skólakerfisins og innan ráðuneytisins. Með leyfi forseta getur maður vísað hér í umfjöllun um námsgögn. Það er talað um þennan margumrædda fjölbreytileika og ég vísa, með leyfi forseta, í þetta og segi:

„Breytt umhverfi skólanna, svo sem hröð tækniþróun og ör fjölgun nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn hefur leitt til breyttra krafna um gerð og inntak námsefnis. Skýrar vísbendingar eru um að núverandi fyrirkomulag svari ekki þeirri þörf. Sömuleiðis hafa rutt sér til rúms ný viðhorf í kennsluháttum og nemendahópurinn hefur orðið æ fjölbreyttari frá því sem áður var.“

Þarna er oft rætt um þennan nýja fjölbreytileika. Þetta er sannarlega fólk úr öllum áttum inni í kerfinu og það er talað um breyttar kröfur um gerð og inntak námsins. Auðvitað verður forvitnilegt að lesa hvað þetta þýðir nákvæmlega því að stundum eru þetta svona hálfkveðnar vísur. Hvað merkir þetta með tilliti til breytinga á námsefni? Þýðir það að nú sé stefnt að því að einfalda námsefni að einhverju leyti og er það þá einfaldað fyrir þennan umrædda hóp eða er það einfaldað fyrir alla? Erum við þá að slá af kröfum á heildina til þess að við getum mætt breiðari hóp inni í skólakerfinu? Er það hugsunin með breyttum áherslum í námsgagnagerð? Námsefni í sjálfu sér er aldrei betra en bara einhvern veginn niðurstaðan sem við náum fram.

Mín reynsla af skólakerfinu, bestu minningarnar eru kannski ekki beint af námsefninu sjálfu eða námsgögnunum heldur kannski bókmenntaverkunum sjálfum sem voru til umfjöllunar. Og auðvitað voru námsgögn margvísleg í þessu. Ég held að í raun og veru séu t.d. dæmi um námsgögn bækur Nóbelsskáldsins okkar með nútímastafsetningu, sem er náttúrlega yfirgengilegt. En þar er sérstaða Halldórs Laxness þessi stafsetning hans. Þessar bækur hafa verið gefnar út með nútímastafsetningu til þess að mæta — ég held að markmiðið sé einkum að mæta nemendum og þessir nemendur sem ég er að tala um eru ekkert fjölbreyttir nemendur eða neitt svoleiðis, það eru líka bara íslenskir nemendur sem þola ekki þessa stafsetningu Laxness. En ég tel alla vega að hún sé hluti af námsefninu. En þetta er alltaf flókið jafnvægi. Ég held að Laxness sjálfur hafi gefið út t.d. — það er útgáfa af Brennu-Njálssögu sem hann gaf út með mjög nútímalegri stafsetningu miðað við þær Íslendingasögur sem var verið að gefa út t.d. í Íslenskum fornritum. Halldór Laxness blótaði stafsetningunni í Íslenskum fornritum í sand og ösku, kallaði hana moldviðrisstafsetningu. Þið hafið séð Íslensk fornrit, þau eru mjög fornleg. Halldór Laxness var á móti því þannig að hann hefði á vissan hátt kannski verið fylgjandi þessari stafsetningarbreytingu á sínum bókum.

En þetta er námsgagnagerð, þ.e. að taka veruleikann, að taka menninguna okkar, að taka bókmenntaarfinn og búa hann einhvern veginn þannig að hann sé aðgengilegur fólki. Ég held að það sé m.a. stóra áskorunin á okkar tímum að búa til leiðir á vegum stjórnvalda inni í menntakerfinu, inni í stóru menningarkerfunum okkar til þess að halda arfinum, þessum sem ég er að tala um — hvort sem það eru Íslendingasögur eða Halldór Laxness eða annað ágætt sem gert hefur verið hérna — á lífi og færa nemendahópnum þetta. Jú, jú, maður getur alveg fallist á að það muni kalla á einfaldanir í ákveðnum skrefum, þ.e. maður þarf að gera fólki þetta aðgengilegt. Ef maður les þessar Íslendingasögur núna á fullorðinsaldri þá rekur maður sig á að það eru sannarlega ættartölur þarna sem eru langdregnar og það er ekkert verra að láta fagmenn sneiða það út sem á kannski ekki erindi við lesandann í bókmenntalegu tilliti. En e.t.v. er maður kominn fram úr sér þarna.

Ég er samt að velta fyrir mér námsgögnum hérna og af því að ég nefni þessa miðlun bókmenntaarfsins t.d. til nútímans þá hef ég áhyggjur — af því að ég þykist vita að núna muni það koma eins og flóðbylgja yfir menntakerfið að nemendur muni nýta sér í verulegum mæli gervigreind til að aðstoða sig við að henda reiður á veruleikanum. Þetta er einfaldlega of gott tól til þess að fólk noti það ekki og ég get rétt ímyndað mér ef maður hefði verið í námi hvað maður hefði notað þetta mikið. Stórt vandamál í íslenska samhenginu í sambandi við gervigreindina er að við erum að vinna með það sem maður verður að kalla, með leyfi forseta, draslgögn. Við erum með íslensku Wikipediu, við erum kannski með Vísindavefinn, við erum með alls konar vefsíður, við erum með fjölmiðlasíðurnar, og það eru nú oft talað um misvandamál þar, á meðan við erum með Landsbókasafn sneisafullt af okkar bestu textum en þeir eru lokaðir þar í fýsískum bókum í stað þess að við höfum aðgang að þeim rafrænt.

Þetta er stórt mál. Þetta er líka tengt námsgögnum og þetta er tengt langtímahugsun í því að við höfum aðgang. Og talandi um kennara, ef þeir gætu flett betur uppi bókmenntaarfinum okkar, af því að við vorum að tala um þetta sem skrifað var fyrir 1940–1950, margt af þessu er komið úr höfundarétti og ætti bara að vera aðgengilegt á netinu. Ég veit ekki alveg, ég þekki ekki alveg, maður er kannski að fara fram úr sér í að boða slíka meiri háttar stafvæðingu bókmenntanna (Forseti hringir.) út frá hagsmunum ýmissa aðila sem ég veit að eru töluverðir, en þá held ég að það sé vert fyrir hæstv. mennta- og barnamálaráðherra (Forseti hringir.) að taka þetta upp á sína arma. Ég held að þetta skipti máli fyrir Ísland. — Og lýk ég þar með máli mínu.