námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. barna og menntamálaráðherra enn á ný fyrir andsvarið. Að sönnu neyðumst við til að vera sammála um að vera ósammála. Ég ítreka þó að það sem ég er að ræða hér er spurning um raunverulega hagkvæmni í ríkisrekstri. Það er öðrum þræði alvarlegt mál að ríkisvaldið og ríkissjóður og ráðuneyti þessa lands leggi á það kapp að ráðstafa fjármunum þannig að þeir geti — og við getum haft eins mikla vissu og við getum um að fjármunirnir séu sannarlega að nýtast. Ég hef bent á það í umræðu um þetta frumvarp að það er ástæða til að hafa áhyggjur af því að það sé ekki endilega verið að ráðstafa fé hér með þeim hagkvæma hætti sem ég er að tala um. Það eru einfaldlega áhyggjur sem ég er að lýsa óháð því hve umhverfisvænar áherslur ungdómur landsins leggur á hlutina í sínu lífi. Ég held að vísu að Greta Thunberg sé að verða sífellt minna vinsæl. En þá er þetta á endanum alvarlegt mál.