námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir sína framsögu hér. Mig langar aðeins að grennslast fyrir um hjá honum hvort hann telji þetta mikilvæga lexíu fyrir börn og unglinga að þurfa að sjá um ákveðin verðmæti í einhvern tíma, vitandi það að ef þú ferð vel með þau þá muntu uppskera eftir það. Hvort þetta skipti einhverju máli í þessu samhengi.
Síðan langar mig að fá hans sýn á — hann getur velt því fyrir sér: Hér í gamla daga, þegar sá sem hér stendur var barn og unglingur, voru oft sýningar í Laugardalshöllinni þar sem alls konar dót var „frítt“. Þar fóru barnaskararnir um höllina og tæmdu hvern básum á fætur öðrum og voru með fulla poka af dóti sem enginn vissi í raun hvað ætti að nýta í þegar þau kæmu heim. Þarna voru derhúfur og hundruð blaðra og alls konar dót. Ég tók fullan þátt í þessu. Kannski var ég svona illa innrætt barn eða illa upp alinn, efast þó um það. En hvort þetta geti verið svona angi af þessu í raun alvarlega máli þegar við ætlum að ráðstafa fleiri hundruð milljónum í einhvers konar fyrirbæri sem kannski er ekki þörf á. Ég vil bara að athuga hvort hv. þm. Snorri Másson tengi við þetta.