námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir gott andsvar og góðar vangaveltur eins og endranær. Framhaldsskólinn er ákveðinn skóli lífsins og ég held að þáttur í því sé einmitt, eins og ég vék að í minni ræðu, að eignast sínar eigin bækur. Þú veist þá að ef þú ferð vel með bækurnar, passar upp þær, búinn að skapa ákveðinn hvata fyrir því að fara vel með bækurnar vegna þess að þú getur vænst þess að selja þær síðan á næsta ári á skiptibókamarkaði. Þetta er náttúrlega á vissan hátt kapítalisminn í sinni tærustu mynd og þar sem hann nær að skapa þessa góðu hvata, kalla fram þessa góðu hvata, að fólk fari sannarlega vel með hlutina til þess síðan að koma þeim aftur í verð. Þegar við tölum um að fá eitthvað ókeypis, eins og það heitir, þá er t.d. kona mín farin að gera alvarlegar athugasemdir við áhuga minn á þessum bókaborðum sem maður sér víða. Það eru svona bókaborð í sundlaugum og víðar þar sem eru ókeypis bækur. Maður kíkir alltaf af því að fólk kann einmitt kannski stundum ekki gott að meta. Þá er eins manns dauða bók mitt brauð og ég fer og sæki mér einhverja bók. Konunni minni þykir fullmikið um þetta og var reyndar á einhverjum tímapunkti farin að miðað við að ég þyrfti að lesa eina bók heima áður en ég fengi nýja. Ég mótmælti auðvitað þessu gerræði. En þegar ég er búinn að eignast bókina ókeypis þá er ég búinn að slá mínum eignarrétti á hana og það eru eins og töfrar. Þá fer manni að þykja vænt um hana þótt ég hafi ekki átt hana fyrir. Og ég á hana ekkert minna þótt ég hafi fengið hana ókeypis. En þá er ég reyndar kannski mögulega kominn í mótsögn. [Hlátur í þingsal.] Þá þurfum við mögulega að endurskoða heimspekilegar forsendur þessarar umræðu og ég vænti þess að það sé undantekningin sem sannar regluna, frú forseti. [Hlátur í þingsal.]