156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:05]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aðra fyrirspurn. Sannarlega vakti þetta orðalag athygli mína sem hv. þingmaður vísar til. Hér stendur til þegar færi gefst, eftir umræðu um þetta frumvarp hæstv. menntamálaráðherra, að ræða m.a. frumvarp um framhaldsskóla og ég vænti þess og býst við því að hv. þingmaður, sem ég hef átt afar gott og náið samstarf við í allsherjar- og menntamálanefnd, hafi kynnt sér efni þess frumvarps. Þar er talað á svipuðum nótum og að mínu mati er stundum komin jafnvel meiri áhersla á þessa þætti sem við erum að tala um, sem eru þessi tískuorð um inngildingu og fjölbreytileika og annað eins, og stundum er eins og þau taki meira pláss en umræðan um sjálfan árangurinn. Það er m.a. eitthvað sem ég rak mig á í umfjöllun um framhaldsskólana þar sem ég og hv. þingmaður höfum nú reynt að vekja athygli á t.d. vandræðum framhaldsskólanna að fá inn nemendur. Og svo er boðað að það verði leyst með þessu frumvarpi.

Síðan hefur maður ekki tíma til að tíunda hvaða lausnir eru lagðar til í þessu frumvarpi, en þær eru ekki á þann veg sem rætt hefur verið í þessari nefnd og það kemur á óvart, heldur einmitt bara meiri, með fullri virðingu og með leyfi forseta, froða.