námsgögn.
Frú forseti. Við hv. þm. Snorri Másson deilum áhuga á því að börn lesi góðar og vandaðar bókmenntir, mjög ánægjulegt að heyra áhuga hans. Ég hjó eftir því í málflutningi þínum áðan þegar þú ræddir um bókmenntir og mismunandi framsetningu og stafsetningu í bókmenntum. Þetta kallast í kennslufræðinni einstaklingsmiðað nám þegar við matreiðum sama námsefni þannig að allir nemendur séu að læra sama hlutinn en hver á sínum forsendum. En eins og staðan er í dag þá er þetta í höndum kennara að búa til þessa einstaklingsmiðun. Ef ég ákveð t.d. að kenna Laxdælu, sem ég geri á hverju einasta ári, þá þarf ég að gera það á mismunandi hátt með mismunandi nemendum. En allir lesa samt Laxdælu. Það væri gríðarlega gott ef þessi mismunandi útfærsla af námsefni — það hefur verið gert svolítið, það er t.d. gefin út námsbók og síðan er til bók sem er seld á almennum markaði sem hefur verið keypt inn í skólann fyrir ákveðinn hóp nemenda sem er aðeins styttri útgáfa af Laxdælu. Ef þetta yrði gert með fleiri bókmenntaverk fyrir okkur kennara. Það er kannski eitt af því sem við erum að fara að skoða núna varðandi þróun námsefnis, að það verði t.d. hægt að — þetta er sem sagt fyrri spurningin, hvort þú sjái það ekki fyrir þér að það gæti verið til hagsbóta að öll börn geti lesið ákveðin bókmenntaverk en hvert á sínum forsendum.