156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:08]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur fyrir ágæta fyrirspurn. Ég er hjartanlega sammála því að það er einmitt hlutverk okkar í námsgagnagerð að búa einhverju góðu efni nýjan og aðgengilegri búning og það er einmitt einstaklingsmiðað og ég held að það sé líka einstaklingsmiðaðra í víðum skilningi margt af því sem við erum líka að nema, við sem fullorðnir, dagsdaglega, það er annaðhvort einfölduð útgáfa af einhverju miklu flóknara eða flókin útgáfa af einhverju sem einhver annar myndi ekki ráða við. Og ég held að það sé líka hlutverk skólakerfisins.

Í sambandi við Laxdælu. Maður er búinn að vera að reyna að leysa hana núna fyrir svefninn á kvöldin í lesbrettinu og þar koma langir kaflar sem eru ekki við hæfi í kvöldlestri. Þeir eru svæfandi. Þá hugsar maður: Það væri kannski betra að vera með útgáfu — mig minnir t.d. að Gunnar Karlsson hafi verið með útgáfu á Laxdælu þar sem er búið að — maður treystir hans mati. Fagmenn hafa farið yfir textann og sagt: Þetta hérna verður fólk að meðtaka og þessar hérna ættartölur ekki. Það er einmitt þetta sem ég held að sé bara lykilatriði í okkar lesskilningi í víðasta skilningi sem ég held að þurfi að koma inn í skólakerfið. Þar held ég, af því að ég nefndi tæknina hérna áðan, að það sem m.a. þessi stóru tungumálalíkön og gervigreindarlíkön geta gert sé einmitt þetta; að sjóða niður eitthvað í aðeins einfaldari mynd. Þau þurfa að verða aðeins betri því að við þurfum að geta treyst því að þau gæti nákvæmni, að þau séu ekki að svindla og láta sér detta hlutir í hug sem standa ekki í alvörutextanum. Það þarf að girða fyrir slíkar villur í gervigreindinni. En síðan held ég einmitt að í gervigreindinni getirðu sagt: Geturðu sagt mér þetta eins og ég sé sjö ára? Geturðu sagt mér þetta eins og ég sé tíu ára? Geturðu sagt mér þetta eins og ég sé 12 ára? Ef þetta fer að virka raunverulega þá fyrst erum við komin með einstaklingsmiðað nám.