156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:10]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Nú langar mig að nefna hitt sem mig langaði að ræða, sem var varðandi námsgögn í framhaldsskóla sem þú talaðir um og sem varðar bækur. Ef námsgögn í framhaldsskóla væri nú bara bækur þá væri þetta kannski einfaldara mál. En nám í framhaldsskóla gerir kröfur um að allir hafi tölvur og í Reykjavík hafa nemendur frá 6. upp í 10. bekk núna allir aðgang að tölvu, allir fá tölvu til afnota í sínu námi. Það er ekki þannig í framhaldsskóla þannig að það ríkir ekki jafnræði til náms meðal nemenda eins og staðan er í dag í framhaldsskólum og þá aðallega í þessari tækni því að nú fer allt nám fram stafrænt, eða að stórum hluta fram stafrænt, getum við sagt.