156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:11]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur enn á ný fyrir ágæta fyrirspurn. Ég held að það sé sannarlega tilefni til að íhuga þennan þátt sérstaklega. Ég tók í mínu máli bækurnar sannarlega sérstaklega fyrir án þess að taka tillit til tölvunotkunar og ég held að það sé sjálfsagt að líta með jafnræðisgleraugunum á þann þátt að fólk hafi tæknilegar forsendur til að sinna náminu. Ég held að vísu, ef maður rifjar aftur upp sína veru þarna, sína vist í framhaldsskóla, þá voru margir með tölvur og flestir, en það var kannski ekki einhver miðlæg eining sem var að útvega þær tölvur. En enn á ný, þannig að maður mæri kapítalismann þá er hann líka að færa okkur sífellt öflugri vélar á sífellt niðursprengdara verði þannig að markaðurinn mun á sinn hátt hjálpa okkur í þá átt að tryggja sannarlega að fólk fái sína tölvu.