námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að flytja þetta ágæta mál og vera með okkur hér í þingsal á meðan fjallað er um málið. Til umfjöllunar er frumvarp til laga um námsgögn og því ber að fagna. Vonandi bætir þetta námsefnisgerð við alla skóla og stuðlar að árangursríku skólastarfi. Ekki veitir af. Það sem ég sakna í þessu frumvarpi eru orð sem heyrast allt of sjaldan þegar rædd eru menntamál; árangur, námsgögn sem skila árangri. Það kemur fram í frumvarpinu að það sé möguleiki á gæðaeftirliti og ég vona að það verði virkt og gott.
Með frumvarpinu er gert ráð fyrir því að nemendur til 18 ára aldurs fái gjaldfrí námsgögn en eins og allir vita er í raun enginn frír morgunverður. Þetta kostar allt eitthvað og einhver kemur til með að borga þetta. Þess vegna skiptir mjög miklu máli að þessi námsgögn verði þannig úr garði gerð, þessi efnislegu námsgögn, að þau séu endingargóð og nýtist eins lengi og mögulegt er þannig að það sé hægt að endurnýta námsgögn ár eftir ár. Miðað við það sem stendur í frumvarpinu er lítill partur af námsgögnum sem nýtist á milli ára, einungis 13–14% sem mér finnst lág tala. Ég hefði haldið að það væri hægt að útbúa námsgögn þannig, þau sem eru efnisleg og nýtast ár eftir ár, að þau dugi betur en það.
Í 5. gr. kemur fram að ráðherra sé heimilt að setja gæðaviðmið um gerð og útgáfu námsgagna skv. 1. mgr. í reglugerð. Þetta er mikilvægur þáttur og fyrst hæstv. ráðherra er ábyrgur fyrir útgáfu námsefnisins þá finnst mér að það ætti ekki að vera heimild heldur ætti að vera skylda hæstv. ráðherra að setja gæðaviðmið, að þarna væri ekki einungis heimild heldur skylda því að til að geta borið ábyrgð á hlutum þá verður maður að vera með sín fingraför á þeim og ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að hafa þetta sem skyldu, að gæðaviðmið verði skylda en ekki heimild einungis.
Það skiptir öllu máli að námsgögn séu þess eðlis að bæði nemendur og kennarar geti nýtt sér þau til fullnustu. Það að búa til námsefni kostar mikinn tíma og fjármagn. Það ætti að búa þannig um hnútana og forskoða námsgögnin áður en þeir fara í framleiðslu að þau skili þessum námsárangri sem íslensk börn eiga rétt á. Ef það verður skylda að hafa þessi gæðaviðmið þá munu þeir sem búa til námsefni vita hver viðmiðin eru og ekki búa til námsefni undir þeim viðmiðum. Þetta eykur líkurnar á námsárangri hjá nemendum og í raun jafnar stöðu allra því að námsefni sem er gefið út fyrir nemendur og uppfyllir ákveðin viðmið er ákveðin trygging foreldra fyrir því að börnin þeirra fái gott námsefni en ekki bara eitthvert námsefni sem einhver býr til einhvers staðar einhvern tímann.
Ég er ánægður með að hæstv. ráðherra beri beina ábyrgð á námsgagnasjóði, kannski ólíkt sumum öðrum. Ég er ánægður með að menn beri pólitíska ábyrgð, að það sé þá hægt að kjósa menn í burtu ef þeir klúðra pólitískt sínum málum en að dreifa ekki ábyrgðinni á 30–40 embættismenn sem allir benda hver á annan. Ég er því sérstaklega ánægður með að hæstv. ráðherra beri beina ábyrgð á námsgagnasjóði. Hæstv. ráðherra mun þá hirða ágóðann af því sem vel er gert og þurfa þá að svara fyrir það ef ekki vel gengur. Það er í raun löngu kominn tími til að ráðherrar beri beina ábyrgð á sínum málaflokkum. Þá á ég ekki bara við um menntamálin. Með skýrri ábyrgðarkeðju verða verkin unnin af meiri krafti, ábyrgð og gæðum en ella. Ef ábyrgðinni er dreift á marga aðila er tilhneigingin að benda hver á annan, eins og ég nefndi áðan, ef eitthvað bregst en allir tilbúnir að hirða ágóðann ef vel gengur.
Þróunarsjóður námsgagna er mjög mikilvægur. Með leyfi forseta segir í 10. gr.:
„Styrkir úr þróunarsjóði námsgagna skulu veittir einstaklingum, rekstraraðilum skóla og fyrirtækjum. Styrkjum skal úthluta eigi sjaldnar en einu sinni á ári.
Ráðherra auglýsir ár hvert eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði námsgagna.“
Hér er vonandi verið að stíga skref í átt til þess að aðrir en ríkið geti búið til námsgögn, þarna kemur fram „fyrirtækjum“, því að oft er það þannig að úti í kennarasamfélaginu eru kennarar sem finna að skórinn kreppir og þeir eru mögulega búnir að föndra við að búa til námsefni árum saman. Þá væri gott fyrir þessa kennara að hafa gæðaviðmið til að meta sitt námsefni. Passar það við gæðaviðmiðin? Ef ekki, hvað þarf að gera til að bæta námsefnið þannig að það verði hæft til þess að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu taki námsefnið mögulega upp á sína arma? Þetta skiptir miklu máli. Ég hef fengið fullt af fyrirspurnum frá kennurum og öðrum aðilum sem eru að semja námsefni núna um þetta og gæðaviðmiðin þannig að ég ítreka það til hæstv. ráðherra að þessi gæðaviðmið verði skylda en ekki heimild.
Í greinargerðinni kemur eftirfarandi fram, með leyfi forseta:
„Þá kom fram í samráði við hagsmunaaðila að almennt væri horft til þeirrar framtíðarsýnar að börn á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi hefðu aðgang að fjölbreyttum og vönduðum námsgögnum þeim að kostnaðarlausu og að komið yrði á samræmdu eftirlits- og gæðakerfi fyrir námsgögn þar sem gæði námsgagna yrðu tryggð í gegnum fjármögnun og eftirlit með þeim.“
Þetta er eitthvað sem ég er hrifinn af því að við getum ekki látið einhvers konar froðu eða rusl sigla inn í skólana eftirlitslaust. Sérstaklega í grunnskóla, sem er skyldunám, verðum við að hafa ákveðin lágmarksgæði á öllu sem þar fer fram þar sem fólk er skyldað inn í skóla í tíu ár. Ég held að það sé í raun hvergi skylda að vera annars staðar en í grunnskóla og mögulega fangelsi þannig að það skiptir máli að það efni sem er notað í grunnskólunum, og auðvitað framhaldsskólunum og leikskólunum og háskólunum líka, séu góð námsgögn og að það sé vel farið með fé, og af því að auðvitað eru peningar til námsefnisgerðar takmörkuð auðlind að þetta sé þá vandað sérstaklega fyrir íslensk börn.
Reynsla kennara af þróunarsjóði námsgagna er þannig, sem ég hef heyrt frá nokkrum kennurum, að sjóðurinn mætti vera skilvirkari, sérstaklega hvað varðar tímasetningar umsókna og úthlutunar. Umsóknarfrestur er til miðs febrúar en svör berast ekki fyrr en í maí og samningar gerðir í júní. Þetta gerir höfundum námsefnis afar erfitt að fullvinna námsefni í tíma fyrir næsta skólaár þannig að mögulega gæti hæstv. ráðherra skoðað þetta, og til að ná fram markmiðum frumvarpsins um gjaldfrjáls námsgögn þarf að finna skilvirkan farveg til að skapa efnið sjálft. Þarna er ég þá að tala um kennara úti í skólunum. Ef Miðstöð menntunar og skólaþjónustu á að hafa umsjón með útgáfu er mikilvægt að tengja kennara beint við miðstöðina. Kennarar þekkja best þarfir nemenda sinna og vita hvaða efni hentar hverju sinni. Sérfræðingar í menntamálum, hönnun og útgáfu geta hins vegar veitt kennurum nauðsynlegan stuðning við þróun og gerð efnisins, þannig að það er mikilvægt að tengja saman kennarana sem eru að búa til námsefni og svo Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Þarna verður vonandi bara virkur samgangur á milli.
Í frumvarpinu og líka í hér fyrr í dag í umræðunni kom skýrt fram í máli margra hv. þingmanna, ég heyrði það nú reyndar ekki frá hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, að námsgögnin eigi að vera í samræmi við aðalnámskrá og er það fullkomlega eðlilegt þar sem aðalnámskrá er leiðarvísir kennara til að kenna. Í aðalnámskrá kemur fram hvað á að kenna. Þess vegna er fullkomlega eðlilegt, eins og kemur fram í frumvarpinu, að námsgögnin byggist á aðalnámskrá. Það kom líka fram, svo ég endurtaki það, í máli hv. þingmanna sem hafa talað hér á undan mér.
Þá langar mig að vísa í skýrslu sem kom út hjá menntamálaráðuneytinu árið 2021 um það hvernig skólasamfélaginu hefur gengið að vinna með aðalnámskrá grunnskóla sem námsgögnin byggjast á, með leyfi forseta:
„Niðurstöður leiddu nefnilega í ljós að mikil óvissa og óöryggi hefur ríkt árum saman hjá kennurum og skólastjórnendum, foreldrum og nemendum. Öllum þessum hópum þykja helstu þættir aðalnámskrárinnar illskiljanlegir, of háfleygir og of undirorpnir túlkun hvers og eins. Í ljós kom að skólastjórnendur og kennarar töldu innleiðingu námskrárinnar hafa farið fram alfarið á þeirra vegum og án aðkomu menntamálayfirvalda því þaðan hafi hvorki stuðningur né skýr svör borist.“
Á þessu eiga námsgögnin að byggja. Með leyfi forseta, held ég áfram:
„Einnig þótti skólastjórnendum og kennurum aðalnámskráin hafa verið of stór biti í einu og að skipta hefði þurft innleiðingunni niður í áfanga í stað þess að gera svo miklar breytingar á öllu grunnskólakerfinu á sama tíma. Sömuleiðis þurfi að einfalda hæfni- og matsviðmið til muna og fækka þeim. Mikið ósamræmi er í því hvernig aðalatriði námskrárinnar, til að mynda hæfniviðmið,“ — og hæfniviðmið eru þau sem við notum til að meta nemendur — „matsviðmið og námsmatskerfi, eru notuð í grunnskólum landsins og ljóst að helstu markmið aðalnámskrár grunnskóla“ — sem er í gildi núna, gefin út 2011 og 2013 — „frá árinu 2011 og 2013 hafa ekki náðst.“
Á þessu byggjast öll námsgögnin. Það kemur ítrekað fram í frumvarpinu. Við erum að byggja námsgögn á innleiðingu sem ekki varð og hinum dapurlega lestri sem ég las hér upp í skýrslu sem var framkvæmd á vegum menntamálaráðuneytisins, hún var gerð í kringum 2019 og gefin út 2021. Við erum að fara út í vegferð, við erum að byggja hús og grunnurinn sem húsið á að standa á er ekki til staðar. Ég spyr því ráðherra hvað honum finnist um þetta.