156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:28]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir ágæta yfirferð í þessu mikilvæga máli. Nú hef ég unnið með hv. þingmanni inni í allsherjarnefnd og veit að hann hefur töluverða innsýn í hinna ýmsu kima íslensks menntakerfis. Hér er verið að ræða um námsgögn og við höfum rætt þau hérna í víðum skilningi. Mér leikur forvitni á að vita hvernig það hefur horft við hv. þingmanni í stöðu hans sem skólastjóra á fleiri en einum stað og kennara til margra ára: Eins og hann sér þetta frumvarp sem nú liggur fyrir þinginu er það þá niðurstaða hv. þingmanns að hér sé verið að ræða verulegar umbætur? Svona fyrir utan þessar aðgerðir að hefja að niðurgreiða námsgögn í framhaldsskóla þá eru ýmsir aðrir þættir í þessu. Hvernig les hv. þingmaður í þetta? Er þetta til bóta í víðum skilningi eða eru áherslurnar á einhvern hátt skakkar eins og við höfum nú rætt hér við ýmis tilefni?