156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:29]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir góða fyrirspurn. Það er aðeins erfitt að átta sig á hvað er í þessu frumvarpi því að það er ekkert sagt með beinum hætti. Staðan í námsgagnagerð er ekki góð þannig að í raun er öll viðbót líklegast til bóta. En hvernig farið er með fé, þar þyrfti maður að fá miklu nákvæmari útlistun á því hvað menn ætla að gera og í hvað peningarnir eiga að fara. Þannig að það er kannski erfitt að ætla að finna út úr því núna. Ég hefði viljað fá nánari útlistun á t.d. bara hugmyndafræðinni á bak við námsefnisgerðina. Það er talað um kennsluhætti í þessu. Hvaða kennsluhættir eru það? Það eru alls konar kennsluhættir sem hafa rutt sér rúms núna og ekki skilað neinum árangri en aðrir eru mjög árangursríkir, þannig að það er erfitt að festa hendur á einhverju sem er ekki til staðar.