námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir svarið. Í framhaldi af þessari umræðu, af því að það getur veitt okkur verðmæta innsýn að tala við skólamenn hérna í ræðustól þingsins, þá leikur mér líka forvitni á að vita í sambandi við námsgögnin hvernig almenna viðhorfið og rétta viðhorfið er að mati hv. þingmanns í sambandi við t.d. notkun spjaldtölva og tölva, bara tölva almennt inni í skólunum, jafnvel á þessum yngstu stigum. Er handskrifaða námið þá á útleið að verulegu leyti eða verðum við alltaf að halda í það? Verður þetta allt stafrænt? Og er þá ekki ástæða til þess að ríkisvaldið sé virkilega vakandi, ef þróunin stefnir í þá átt þurfum við þá ekki að vera strax mjög vakandi fyrir því í staðinn fyrir að — ekki það að ég hef alveg trú á gömlu góðu aðferðunum, en ef þetta er, pedagógískt séð, eina leiðin fram á við, ég tala nú ekki um út af umhverfisþáttunum og öðru eins, hvað segir hv. þingmaður um þetta?