156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:32]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir góða spurningu. Ég set stórt spurningarmerki við það að vera með skjái niður í sex ára bekk þegar félagsfærni fer minnkandi og kvíði eykst. Ég er ekki að segja að ég geti tengt þetta beint við skjánotkun en það er sérstök samsvörun, að upp úr 2010 fór geðheilbrigði ungmenna hratt hrakandi. Það er bara vísindalega sannað að þú nærð meiri árangri með því að læra með því að skrifa heldur en að slá á lyklaborð. Í tvíblindum rannsóknum er sýnt fram á það. Þess vegna finnst mér að grunnskólinn — enda heitir þetta grunn-skóli —ætti að kenna grunnatriði eins og lestur, (Forseti hringir.) stærðfræði, félagsfærni. Og skjáir, ég held að börn fá alveg nóg af skjám (Forseti hringir.) þannig að þau séu ekki umvafin skjám frá unga aldri í grunnskólanum.