námsgögn.
Frú forseti. Ég kem í andsvar við hv. þm. Jón Pétur Zimsen af því að hann er nú alkunnur skólamaður hér á þinginu. Ég hef auðvitað eins og aðrir áhyggjur af menntun ungviða okkar, ungmenna. Þau hafa nú ekki beint verið að skora hátt í prófum eða könnunum, sérstaklega ekki í þessari PISA-könnun. Af því að þetta er nú enginn tími sem ég hef get ég ekki haft neinn inngang að þessu. Ég er bara með nokkrar spurningar, byrja kannski á þessari: Finnst hv. þingmanni eðlilegt að ráðherra sé einn núna, að það sé ekki stjórn, yfir námsgagnasjóði, eins og 7. gr. gerir ráð fyrir, að ráðherra beri ábyrgð á starfrækslu námsgagnasjóðs? Áður var stjórn yfir þessum sjóði en nú er ráðherra einn þarna yfir.