156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:36]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er ekki nokkur tími. Ég ætlaði að bera upp margar spurningar. Eina hér: 5. gr. Þar er verið að tala um námsgögn sem njóta stuðnings sjóða samkvæmt þessum lögum. Þarna stendur: „skulu vera vönduð“. Ég er nú svolítið andsnúinn því að í lagatexta séu einhver svona orð sem hafa ekki nokkra merkingu, hæstv. forseti; að námsgögn skuli vera vönduð. Hvað finnst hv. þingmanni um þetta? Hefur þetta einhverja merkingu? Þau geta verið alla vega og svo geta menn sagt: Ja, þetta er vandað. Hvaða skoðun hefur hann á þessu orðalagi sem er í lögunum? Ég myndi bara vilja strika það út.

Annað sem ég ætlaði að spyrja um er: „Ráðherra skal birta útgáfuáætlun námsgagna til fimm ára í senn …“ Ég er búinn að sjá mörg lög hérna á Alþingi þar sem kveðið er á um að ráðherra skili Alþingi skýrslu. Finnst hv. þingmanni kannski að þarna sé tækifæri til þess, af því að við höfum áhyggjur af námi ungmenna í landinu og við viljum helst fylgjast með því (Forseti hringir.) að þetta fari ekki bara niður á við? Finnst hv. þingmanni ekki rétt að þessi útgáfuáætlun til fimm ára af hendi ráðherra verði þá lögð fram á Alþingi?