námsgögn.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta fyrir góða spurningu. Almennt í frumvörpum og í lagatexta ættum við að reyna að skera niður einhvers konar orð sem hafa enga merkingu og þarna er eitt slíkt sem hv. þingmaður rakst á. Að sjálfsögðu ætti þetta að koma hérna fyrir þingið, þessi útgáfuáætlun, þannig að þingið fái að fjalla um áætlunina. Þetta er, eins og hv. þingmaður kemur inn á, mjög mikilvægt mál. Og ef menntamál fá alltaf að skauta einhvern veginn fram hjá og koma ekki hingað inn í þingsal þá erum við bara að sýna þessum málum að þau eru skör lægra heldur en önnur mál. Ég held að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sé sammála okkur í því að þetta sé eitthvað sem komi fyrir þingið. Ég held að hann hafi metnað til þess.