156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:39]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu en ólíkt öðrum ræðum, mörgum hverjum, sem hafa verið fluttar í dag þá er verið að fjalla um það efni sem er til umræðu og á dagskrá hér. Það er ólíkt mörgum ræðum sem hafa verið fluttar í þessu málþófi sem hefur staðið hér yfir.

Það sem mér finnst hv. þingmaður gera fullmikið úr eru þessi gæðaviðmið. Mér finnst að þegar við erum að tala um að búa til námsgögn fyrir svona, hvað á að segja, breiðan aldurshóp þá skipti mestu máli að búa til andrúmsloft sköpunar og nýsköpunar hjá kennurum. Ég hef séð námsgögn þar sem er verið að búa til myndbönd t.d. í loftstýringu, rafbækur, og taka saman hefti hvað varðar vistfræðitilraunir. Það er það sem skiptir máli, að búa til svona andrúmsloft sköpunar og fá kennara og aðra sem geta lagt gott til í þessum málum til að að leggja hönd á plóg (Forseti hringir.) til að gera námsgögn fyrir æsku landsins.