námsgögn.
Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir gott svar. Það kom kannski engin spurning fram hjá honum en sköpun og nýsköpun nefndi hann. Í raun er hv. þingmaður kannski frekar að tala um kennsluaðferðir og kennslu en námsgögn. En ég vil bara minna þingheim allan á að hvort sem maður kallar það sköpun eða nýsköpun þá byggir þetta allt á þekkingu og reynslu. Þú skapar ekkert nema að hafa þekkingu. Ég er viss um að hv. þm. Sigurjón Þórðarson væri mun líklegri en ég til að skapa eitthvað í kringum litla útgerð, einhvers konar tæki sem hraðar fyrir einhverju um borð í bátum, en ég gæti mögulega skapað eitthvað tengt því að strengja badmintonspaða af því að ég hef sérþekkingu á því. Þannig að sköpun byggir á þekkingu. Sköpun er ekki tekin úr einhverju tómarúmi.