156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:41]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það er rétt sem kom fram hér hjá hv. þingmanni að það skiptir máli að það sé fjölbreyttur hópur sem kemur að svona víðtæku verkefni. Þess vegna hef ég ákveðnar áhyggjur af samsetningu stjórnarinnar, þ.e. að það sé verið að setja nemanda þarna inn í stjórn, mér finnst að það sé eitt af þeim atriðum sem mætti skoða, og síðan einhvern frá atvinnulífinu. Það er þá líklegast einhver lögfræðingur sem kemur frá Samtökum atvinnulífsins. Ég held það skipti einmitt máli að hafa fjölbreyttan hóp til að það sé farvegur og jarðvegur fyrir fjölbreyttar hugmyndir til þess að það sé skoðað námsefni fyrir verkmenntun, fyrir listir og fyrir leikskóla og grunnskóla og allt það sem á að heyra undir þessa mikilvægu stjórn.