156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[22:42]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni aftur fyrir gott innlegg. Það var kannski engin bein spurning í því en ég held og veit að almennt í stjórnum sem eiga að taka ákvarðanir verðum við að veita því fólki sem þar er þjálfun því að allt of oft eru einhverjar stjórnir myndaðar, fólkið er togað inn í þessar stjórnir og á að hafa áhrif en hefur í raun ekki nógu fastan grunn til að byggja á öðru en eigin reynslu. Ég er ekki að tala um að það þurfi að innræta fólki eitthvað en það þyrfti að vera einhvers konar almenn þekking á viðfangsefninu áður en menn setjast í stjórnir. En það er gott að hafa fjölbreytta einstaklinga innan stjórna til að fá sem flest sjónarmið.