námsgögn.
Frú forseti. Ég vildi spyrja hv. þm. Jón Pétur Zimsen hvaða vísbendingar megi lesa út úr því ef við höfum svona miklar áhyggjur af því að námsgögn verði nemendum að kostnaðarlausu. Þá er ég ekki að segja hér að gögnin séu ókeypis. Það er auðvitað einhver sem greiðir þau. Skattgreiðandinn greiðir þau. En hvaða vísbendingu má lesa út úr þessum áhyggjum? Getur verið að slíkar áhyggjur séu birtingarmynd til að mynda agaleysis eða að okkur gangi ekki nógu vel að kenna nemendum og gera þeim grein fyrir því að það er einhver sem greiðir og að bera virðingu fyrir því sem lagt er til? Með öðrum orðum, af því að ég nú bara þrjár sekúndur eftir: Liggur ekki bara vandinn hjá okkur að kenna unga fólkinu þá að fara með þessi gögn?