námsgögn.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir góða spurningu. Þetta er virkilega góð spurning. Það er allt of oft þannig hugarfar hjá okkur, og það birtist meira að segja ítrekað í fjölmiðlum í kringum svokallaða PISA-rannsókn, að nemendur leggi ekkert á sig af því að þeir fái ekkert í staðinn. Þetta er kannski angi af því sem þú ert að segja, hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson, að það sé ákveðið agaleysi, að við getum ekki gert hluti án þess að fá umbun strax. Og hlutir sem eiga að heita ókeypis, að við hættum að bera virðingu fyrir þeim verðmætum sem felast í þeim hlutum, því að auðvitað er ekkert ókeypis. Það er enginn frír morgunverður hér frekar en annars staðar.