námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni aftur fyrir góðar vangaveltur. Staðan er orðin þannig að börnin okkar eru algerlega böðuð upp úr rafrænni endurgjöf sem veitir endorfínkikk, eða endorfínskot, þannig að maður tali nú íslensku hér í pontu, hratt og örugglega allan daginn ef svo vill vera. Það er bara orðið ákveðið erfiðleikastig vegna skertrar athygli barna, og bara fullorðinna líka, að leggja á sig það lærdómsferli sem þarf til þess að nema eitthvað nýtt. Ef það kemur ekki bara með því að smella fingri þá erum við allt of mörg, ekki bara börn heldur líka fullorðnir — við viljum fá allt strax og ekki hafa neitt fyrir því. En þannig virkar lífið ekki. (Forseti hringir.) Við þurfum að hafa fyrir hlutunum. Þannig fáum við eitthvað út úr hlutunum (Forseti hringir.) og fáum fullnægju út úr (Forseti hringir.) því að hafa afrekað eitthvað.