námsgögn.
Frú forseti. Nú hefur umræðan þroskast að ákveðnu leyti og ég ætla því að fá að detta hér inn á ákveðna staði svo ég reyni nú að endurtaka ekki mikið af því sem hér hefur áður komið fram. Mig langar aðeins að ræða 7. gr., um starfrækslu. Með leyfi forseta þarf ég aðeins að fá að lesa hérna upp. Hér stendur:
„Ráðherra ber ábyrgð á starfrækslu námsgagnasjóðs og úthlutar styrkjum úr sjóðnum. Ákvarðanir um úthlutun úr námsgagnasjóði eru endanlegar og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.“
Mér finnst þetta svolítið áhugavert og ég er ekki viss um að þetta sé rétt leið. Ég velti því fyrir mér hvort þetta sé í fyrsta lagi eðlileg stjórnsýsla og í öðru lagi hvort það væri þá ekki eðlilegra, í stað þess að ráðherra ákveði styrkveitingarnar, að sjóðurinn eða þeir sem verða í honum ákveði og það væri hægt að skjóta til ráðuneytisins ef fólk er ósátt. Mér finnst mjög óeðlilegt að það sé bara ekkert hægt að gera. Þetta er ekki eins og önnur stjórnsýsla þannig að ég held að við þurfum aðeins að skoða þetta.
Svo varðandi 9. gr., þar stendur, með leyfi forseta:
„Ráðherra skipar þróunarsjóði námsgagna sjö manna stjórn til fjögurra ára í senn. Skal einn stjórnarmaður tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, tveir af samtökum kennara, einn tilnefndur fyrir hönd skólameistara framhaldsskóla, einn fyrir hönd nemenda og einn fyrir hönd atvinnulífs. Ráðherra skipar einn stjórnarmann án tilnefningar …“
Nú eru þetta orðnir svolítið margir stjórnarmenn. Ég ætla ekki endilega að segja að þeir séu of margir eða hvort það eigi frekar að vera eitthvert ráðgjafarráð heldur en að þetta sé eiginleg stjórn en fyrst það er verið að tilgreina svona ítarlega hvaðan fulltrúarnir eiga að koma þá velti ég fyrir mér: Hvað með fulltrúa frá leikskólasviði? Þeir eiga engan fulltrúa hérna. Eða hvað með fulltrúa tónlistarnáms? Þeir eiga ekki heldur fulltrúa. Nú hefur þetta frumvarp mikil áhrif á þessa aðila eða þessar stofnanir þannig að mig langar að benda á þetta. Það má kannski skoða þetta aðeins betur.
Svo ef við förum yfir í 10. gr. varðandi styrkveitingarnar, varðandi styrki úr þróunarsjóði námsgagna, þá stendur:
„Ráðherra ákveður styrkveitingar úr sjóðnum og skilyrði þeirra. Þær skulu taka mið af stefnu stjórnvalda og útgáfuáætlun námsgagna.“
Þetta skarast kannski svolítið á við það sem ég sagði um 7. gr. áðan, hvort það væri ekki eðlilegra að ráðherra væri ekki að ákveða styrkveitingarnar heldur væri hann kannski að úrskurða, það væri hægt að skjóta því til ráðherra. Ef þetta endar svona þá vil ég bara taka það fram að ég held að sé mjög mikilvægt að allsherjar- og menntamálanefnd fari yfir það að þessar reglur sem verða settar verði að vera mjög gagnsæjar af því að þetta býður upp á að tilgangi frumvarpsins verði kannski mögulega síður náð. Tilgangurinn væri alla vega í hættu því að ákvörðunartakan verður svolítið á einni hendi á endanum. Þrátt fyrir að reyna að hafa þennan fjölbreytta hóp sem á að koma að þessu kemur síðan ráðherra sem ákveður þetta á endanum og hvernig skilyrðin eru. Það þarf alla vega að skoða þetta aðeins betur.
Svo þegar við förum yfir í útgáfuáætlunina þá stendur, með leyfi forseta:
„Útgáfuáætlun skal unnin í samvinnu og samráði við hagsmunaaðila, þ.m.t. kennara, skóla og atvinnulíf, með hliðsjón af stefnu stjórnvalda, aðalnámskrám og út frá greiningu á þróun, nýsköpun í námsefnisgerð og alþjóðlegum skuldbindingum.“
Ég ætla að staldra við hér, alþjóðlegar skuldbindingar, hvort það væri kannski hægt að útlista þetta nánar. Ég get getið mér til um hvað þetta þýðir en ég held að þetta geti verið ansi vítt og þetta þurfi að skilgreina, hvaða alþjóðlegu skuldbindinga þetta á að taka tillit til af því að alþjóðlegar skuldbindingar okkar eru mjög margar. Svo er haldið áfram:
„Ráðherra skal hafa samráð við börn og ungmenni um útgáfuáætlun námsgagna.“
Ég veit ekki alveg hvernig það samráð á að fara fram. Ég verð nú svolítið forvitin að heyra frá hv. þm. Jóni Pétri Zimsen hvort hann hefur einhverja skoðun á hvernig þessu verður best fyrir komið. En ef þetta verður með þessum hætti þá vil ég minna hæstv. ráðherra á það að þegar það er svona samráð er alltaf hætt við því að börn á landsbyggðinni verði ekki í samráðinu. Þau hafa ýmislegt til málanna að leggja, get ég ímyndað mér, sem er ólíkt því sem börn á höfuðborgarsvæðinu hafa og því þarf að passa upp á það.
Svo erum við komin í ákvæði til bráðabirgða. Þar segir:
„Ráðherra ber ábyrgð á því að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að tryggja að ákvæði 4. gr. um gjaldfrjáls námsgögn verði innleitt í áföngum til 1. ágúst 2029.“
Við ræddum þetta aðeins áðan varðandi þessa áfangaskiptingu. Fyrst eru þetta yngri bekkirnir og svo eldri bekkir og gott og vel. En ef þetta er mjög mikilvægt, þarf þá ekki að flýta þessu eða eru ekki til peningar fyrir því eða er þeim ekki forgangsraðað í þetta verkefni? Svo held ég að væri gott að þingheimur eða alla vega allsherjar- og menntamálanefnd fengi að sjá þessa áfangaskiptingu.
Svo skulum við færa okkur hérna niður í greinargerðina. Ég ætla bara að detta inn í greinargerðina í innganginum. Þar stendur að ríkisstjórnin hyggist ná markmiðum sínum með því að hefja sókn í menntamálum, bæta umhverfi nemenda og kennara. Þar segir jafnframt að lögð verði áhersla á íslenskukennslu, læsi og aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum. Þarna vorum við líka að ræða áðan og ég ítreka: Það skiptir máli að foreldrar eru hluti af þessari heild og að þau eru hluti af þessu umhverfi. Einnig vil ég leggja áherslu á þennan punkt, íslenskukennslu, af því að við erum að tala um að þetta blandist inn í menntastefnu til 2030 og þá held ég að sé svolítið mikilvægt að ræða það, það hefur mikil áhrif á þetta frumvarp að ræða það hvort hér verði ekki komið upp aðlögunarskóla því það er engum börnum greiði gerður með því að setja þau inn í skólana með jafnöldrum sínum, tala kannski ekki stakt orð í íslensku, standa kannski á allt öðrum stað og því velti ég fyrir mér: Af hverju förum við ekki og lærum af löndunum í kringum okkur eins og svo oft er talað um? T.d. ef við flytjum til Hollands þá byrjum við í svona aðlögunarskólum með börnin okkar og þegar þau hafa lært ákveðinn orðafjölda þá fara þau inn í venjulegt skólakerfi. Það léttir á venjulegu skólakerfi, það léttir á kennurum og þetta þarf ekki að vera eitthvað vont heldur er þetta til að hjálpa þeim börnum sem hingað koma og hafa ekki tungumálakunnáttu og líka til að við getum gripið börn sem hafa kannski engan námskunnáttu yfir höfuð eða mjög litla, því hér vitum við að það koma börn sem eru kannski algerlega ólæs á eigin tungumáli þannig að við þurfum að grípa þessi börn líka. Þetta þarf að spila saman, aðlögunarskólinn, menntastefnan og þetta frumvarp.
Svo ítreka ég að það þarf að vera mjög mikilvægt að það sé hægt að kaupa þessi námsgögn fyrir utan skólana, þ.e. foreldrar hafa greiðan aðgang að námsgögnum til að geta hjálpað þeim foreldrum sem eru í þeirri aðstöðu. Foreldrar sem eru með aðstöðu til að hjálpa geta oft hjálpað fleiri börnum en sínum eigin.
Svo ætla ég að halda aðeins áfram með greinargerðina en með leyfi forseta þá er tvennt. Annars vegar stendur:
„Markmið aðgerðar 9, um vönduð náms- og kennslugögn, er að auka gæði,“ — gott að heyra orðið gæði — „fjölbreytni og aðgengi að náms- og kennslugögnum fyrir nemendur á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi sem og í framhaldsfræðslu með áherslu á stafræn námsgögn á íslensku, táknmáli og efni fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.“
Svo kemur kannski hérna aðeins neðar svipað:
„Þá kom fram í samráði við hagsmunaaðila að almennt væri horft til þeirrar framtíðarsýnar að börn á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi hefðu aðgang að fjölbreyttum og vönduðum námsgögnum þeim að kostnaðarlausu og að komið yrði á samræmdu eftirlits- og gæðakerfi fyrir námsgögn þar sem gæði námsgagna yrðu tryggð í gegnum fjármögnun og eftirlit með þeim.“
Eina ástæðan fyrir því að ég segi þetta og er að vekja athygli á þessu er að það er nokkrum sinnum minnst á gæði og það er mjög gott því að það er mjög mikilvægt. En varðandi þennan kafla langar mig að beina því til ráðherra, eiginlega spyrja hann, og til allsherjar- og menntamálanefndar: Er fyrirhuguð mikil breyting á námsgögnum á leikskólasviði? Því að það er ítrekað talað um það hér en það er án þess að segja það og mig langar bara að spyrja: Er verið að leggja grunninn að því að byrja að kenna í leikskóla eitthvað af því sem er kennt núna í grunnskóla? Í dag er þetta þó eitthvað aðeins breytt á milli hvort þú ert í Ísaksskóla eða hvort þú ert í leikskóla hvað þú byrjar að læra t.d. fimm ára. Sumir leikskólar eru alfarið á móti því að byrja að kenna lestur, aðrir alls ekki, þannig að ég er að velta fyrir mér hvort það sé einhver sýn samhliða þessu um breytingar og það verði einhver lína lögð með nám í leikskóla sem var áður í grunnskóla.
Svo fer ég nú að klára það sem ég ætlaði að tala um varðandi greinargerðina en ég hoppa yfir á markmiðin, þ.e. hér stendur, með leyfi forseta:
„… með það að markmiði að endurskoða lög um námsgögn, nr. 71/2007, tók starfshópur um námsgögn til starfa í upphafi árs 2024. Starfshópnum var falið að greina áskoranir og tækifæri vegna fyrirhugaðrar lagasetningar um námsgögn sem ætlað væri að auka aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum fyrir öll skólastig. Hópnum var ætlað að fjalla um aðgengi að námsgögnum, gæði og gerð þeirra, m.a. í ljósi nýjustu rannsókna, þ.m.t. rannsóknar á gæðum kennslu á Norðurlöndum (e. Quality in Nordic Teaching) og PISA.“
Þetta er nú held ég, bara eina skiptið sem ég hef náð að það væri PISA í þessu frumvarpi en það er ekki það sem ég ætlaði að spyrja um af því að við erum aðeins búin að ræða það, við erum aðeins búin að koma inn á það. Nú kem ég að efninu varðandi þetta:
„Starfshópinn skipuðu fulltrúar frá Samtökum menntatæknifyrirtækja, Menntamálastofnun (nú Miðstöð menntunar og skólaþjónustu), Skólameistarafélagi Íslands, Kennarasambandi Íslands, Samfési, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Hagþenki – félagi höfunda fræðirita og kennslugagna, Félagi íslenskra bókaútgefenda, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtökum áhugafólks um skólaþróun.“
Nú kom hérna fram í máli m.a. hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar áðan þar sem hann fór vel yfir það að þetta væri ekki sósíalísk stefna eins og frá fyrri ríkisstjórn sem hann vitnaði til, og ég blessunarlega var ekki hluti af henni, en í ljósi þess að núverandi ríkisstjórn ætlar sér að taka atvinnulífið að borðinu þá beini ég hérna til hv. þingmanns að koma því áleiðis innan sinna raða að það hefði nú verið gott að atvinnulífið hefði haft aðkomu þarna, þannig að það er örugglega hægt að bæta úr því.
Nú er tíminn svolítið að hlaupa frá mér þannig að ég ætla að hoppa yfir í mat á áhrifum frumvarpsins. Þar má, með leyfi forseta, lesa:
„Þá er gert ráð fyrir jákvæðum áhrifum á jafnrétti kynjanna. Er hér m.a. litið til þess að skýrari skylda ráðherra til að fylgja eftir gæðum námsefnis samkvæmt frumvarpi þessu stuðlar að framfylgd 3. mgr. 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétti kynjanna …“
Þetta er gott og blessað ef það á að stuðla að því. En ég verð eiginlega óska eftir að það verði tekið föstum tökum ef kennslugögn í dag mismuna eftir kyni. Er það svo? Ég hef vissulega heyrt sögur af því að námsefni, þá helst kannski í grunnskólum, sé miðað kannski frekar að stúlkum. Ég veit ekki hvort það er verið að tala um það en ég vona að það verði gripið inn í ef við erum í dag með kennslugögn sem mismuna eftir kynjum. Ég bið hæstv. ráðherra að grípa til aðgerða strax í þeim málum.
Svo hérna aðeins um einstakar greinar frumvarpsins. Það er lagt til að „gildissviðið nái einnig til námsgagna fyrir tónlistarskóla. Höfundum námsgagna fyrir tónlistarskóla hefur hingað til ekki verið gert kleift að sækja um styrki úr þróunarsjóði námsgagna og er þessu nýmæli ætlað að stuðla að auknum gæðum og fjölbreytileika námsefnis í tónlistarfræðslu.“
Í þessum efnum spyr ég: Ef tónlistarskólar — sem er bara gott mál — geta sótt um, ættum við kannski líka að víkka þetta út af því að börn eru mismunandi? Ættum við að leyfa íþróttafélögum að sækja um, kannski skákkennslu? Karl Gauti Hjaltason gæti kannski farið yfir það. Það er mjög góð menntun að kunna skák og það hjálpar okkur við aðrar greinar, að ég tel. — Nú er tími minn á þrotum. Ég er ekki nærri búin þannig að ég bið forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.