156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[23:05]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég greip nokkur orð í máli hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur og langaði strax að fara í andsvar við hana og bað um það en mér hefur verið neitað um að fara í andsvar vegna þess að ég er í sama flokki og hún. Þetta vissi ég. Ég þekki vinnureglur forseta, það er engin spurning. Eina sem ég er að segja og vil benda á er að þetta er 1. umræða um þetta mál. Hún er rétt að byrja, hún er að þroskast mjög hratt, umræðan hér, heyrist mér, og það er ekkert komið í ljós í raun og veru hvort við séum, eins og segir í vinnureglunum, sammála eða ekki sammála. Þannig að mér finnst að í svona tilvikum þegar verið er að ræða mál á fyrsta stigi og rétt að byrja ekkert óeðlilegt við það þó að samflokksmenn fari í andsvar og forseti meti það svo jafn harðan og fljótlega hvort menn séu að takast á um málefnin eða ekki.