námsgögn.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti fyrir góða yfirferð á þessu máli. Hv. þingmaður var að velta fyrir sér aðkomu barna að áætlun, fimm ára áætlun, nú man ég ekki alveg hvað hún heitir. En ég hef unnið í skólum með börnum, börn eru í skólaráði og þau eru í nemendafélögum. Þetta er þess eðlis að oft eru málin þung og það getur alveg orkað tvímælis að hafa börn inni í svona ráðum og nefndum. Ábyrgðinni er kastað á ólögráða einstaklinga. En almennt ef börn eru til skrafs og ráðagerða þá er gott að það sé einhvers konar grunnvinna fyrir þau börn, að þau geri sér grein fyrir því hvaða áhrif þau geta haft. Í skólanum sem ég vann í vorum við að skipuleggja skólalóðina og þar fengum við tillögur frá börnum í skólanum. Við fórum blint út í það og þjálfuðum þau ekkert og gerðum þeim ekki grein fyrir ábyrgðinni og fengum þá 300 tillögur um risastóra vatnsrennibraut. En það var lítið um eitthvað uppbyggilegt. Það myndaðist bara einhver hópstemning þar sem krakkarnir (Forseti hringir.) áttuðu sig ekki alveg á því til hvers væri ætlast af þeim. Auðvitað er hægt að gera þetta en við þurfum að veita þeim alla vega ákveðna menntun áður.