námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Maður kemur ekki að tómum kofanum hjá Jóni Pétri Zimsen þannig að ég sé að hæstv. ráðherra hefur heyrt ábendingar hans og reynslu þannig að ég ætla bara að þakka honum fyrir.
Ég ætla hins vegar að nota örlítinn tíma til að ræða hér það sem kom fram, ef ég má, með leyfi forseta, hjá hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni áðan. Það sem mér þykir skrýtið sem nýjum þingmanni — gott og vel að þetta séu reglur, en þá þykir mér mjög skrýtið að ég er búin að vera hérna í sérstökum umræðum þar sem hv. þingmenn eru að fara í sérstakar umræður við hæstv. ráðherra í eigin flokki. Ég segi bara: Hver er munurinn þarna á? Þetta er eiginlega verra. Hæstv. forseti sagði áðan að við gætum rætt saman á þingflokksfundi, ef ég man rétt, eða rætt saman. Væri þá ekki nær að hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans ræddu við ráðherra og kæmu málum áfram án þess að vera með einhverja sýningu hér í einhverjum sérstökum umræðum? Mér finnst það bara einhvern veginn miklu óskiljanlegra heldur en að við þingmenn getum rætt hér í 1. umræðu okkar á milli.