námsgögn.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir sérlega góða góðan pistil hér og get algerlega tekið undir þetta sem nýr þingmaður að hér getum við ekki farið í andsvör hvert við annað innan flokks, sem má alveg færa ákveðin rök fyrir. Við getum rætt þetta í þingflokkunum og þetta gæti skapað freistnivanda til einhvers konar málþófs. En það sem gerist hér í sérstakri umræðu þar sem samflokksmenn fara fögrum orðum hver um annan í löngu og krydduðu máli er alveg umhugsunarvert. Tíma þingsins ætti nú að vera betur varið en svo að einhvern veginn lyfta upp málum. Ráðherrar geta undirbúið sína flokksmenn með spurningar og í raun er lítil gagnrýni á það sem fer fram þar. Það er í raun bara talað um málin með þeim hætti sem ráðherra vill. Þetta er umhugsunarefni og glöggur þingmaður, hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir kom auga á þetta. Ég held að þetta ætti að vera svona — ef sá sem hér stendur yrði einhvern tímann í stjórn þá þætti mér ekki eðlilegt að ég gæti spurt ráðherra míns flokks nákvæmlega þeirrar spurningar sem hann myndi vilja til að lyfta sínum málum upp gagnrýnislaust.