156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[23:15]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég átta mig náttúrlega ekki alveg á spurningunni. Hér stendur bara skýrum stöfum að ráðherra ákveði styrkveitingarnar og skilyrði þeirra skuli taka mið af stefnu stjórnvalda og útgáfuáætlun námsgagna. Ef þetta er bara bundið algerlega við stærð skóla af hverju stendur það þá ekki hér? (Gripið fram í: Hvergi.)Ég stend fast á því enn þá að ég held að það ætti að skoða að það séu kæruleiðir og af hverju verður að taka það fram líka.

Svo velti ég því líka upp — ætla að svara því hérna, að fólk mæti tilbúið til að spyrja ráðherra; ráðherra er bara ekkert til svara núna þannig að ég get ekkert spurt hann.