námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég verða að segja það að mér hefur fundist vera mjög efnisleg og góð umræða um það frumvarp sem við ræðum hér. Ég ætla líka að fá að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að vera hér með okkur í þessari umræðu og hafa tekið þátt í henni. Það er til algjörrar fyrirmyndar og það er alls ekki svo að allir ráðherrar í þessari ríkisstjórn hafi sýnt okkur þá virðingu hér.
En fyrirgefið, virðulegur forseti. Mér finnast athugasemdir sem hafa komið núna í tvígang frá hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni ekki til að bæta andrúmsloftið hér á þingi vegna þess að málefnaleg umræða hefur svo sannarlega átt sér stað. Í mínum huga eru þessar athugasemdir, annars vegar um það að hér sé fólk að ræða eitthvað allt, allt annað, að fólk sé ekki málefnalegt, að fólk sé ekki undirbúið, bara til þess fallnar að kasta hér inn einhverjum leiðindum í annars mjög málefnalega og góða umræðu, sem hv. þingmaður hefur reyndar ekki verið sérstakur þátttakandi í, fyrir utan þessi tvö andsvör sem hafa fyrst og fremst snúið að því að við séum hér í einhverjum annarlegum tilgangi eða ekki að ræða málefnin.