156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[23:17]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vildi bara aðeins koma upp hér og taka upp hanskann fyrir hv. þm. Sigurjón Þórðarson. Ég held að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hafi kannski farið svolítið fljótt upp í pontu núna þar sem einfaldlega var um misskilning að ræða í ræðu hv. þm. Nönnu Gunnlaugsdóttur sem er búið að benda á og leiðrétta og allt í góðu og hægt að halda áfram með umræðuna. Athugasemdir hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar voru vissulega efnislegar og tengdust ákveðnum misskilningi sem er búið að leiðrétta hér og kannski óþarfi að stökkva upp varðandi þennan lið.