námsgögn.
Hæstv. forseti. Ég skal vera stuttorður, tefja þetta ekki mjög. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir hans innlegg hér. En ég verð þó að segja: Það var fullt tilefni til að koma hér í fundarstjórn áður en þessi ræða hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur var flutt því að áðurnefndur hv. þm. Sigurjón Þórðarson var alls ekki í fyrstu ferð hér í pontu. Hann reið á vaðið nokkrum mínútum fyrr með ásakanir um málþóf, jafnvel þó að hér inni séu jafnvel þingmenn sem hafa ekki einu sinni flutt sína fyrstu ræðu. Nú veit ég ekki hvort hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni er yfirleitt kunnugt um þá umræðuhefð sem er hér í þinginu og þær málvenjur sem eru hér og venjulega þinglega meðferð mála, þegar menn gráta sem stungnir grísir í 1. umræðu þegar ekkert nálægt því allir hafa tjáð sig. Hér eru menn í einhverri skógarferð, nestislausir.